2016-06-22 13:27:28 CEST

2016-06-22 13:27:28 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Veðskuldabréfasjóður ÍV - Lýsing/tilkynning um birtingu lýsingar

Veðskuldabréfasjóður ÍV: FME staðfestir lýsingu vegna stækkunar skuldabréfaflokksins VIV 14 1


Skuldabréfaflokkurinn VÍV 14 1 - Veðskuldabréfasjóður ÍV - Birting lýsingar

Útgefandi: Veðskuldabréfasjóður ÍV - fagfjárfestasjóður., kt: 541112-9950,
Strandgötu 3, 600 Akureyri.

Veðskuldabréfasjóður ÍV hefur birt lýsingu sem samanstendur af samantekt
dagsettri 21. júní 2016, verðbréfalýsingu dagsettri 21. júní 2016 og
útgefandalýsingu dagsettri 21. júní 2016. Lýsingin er birt í tengslum við umsókn
um stækkun skuldabréfaflokksins VIV 14 1 sem skráður er á aðalmarkað NASDAQ
Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu í samræmi við
ákvæði laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.

Íslensk verðbréf höfðu umsjón með gerð lýsingarinnar

Lýsingin er gefin út á íslensku. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu
sjóðsins, http://www.viv.is/

Nafnverð útgáfu

Skuldabréfaflokkurinn VIV 14 1 stækkar um ISK 2.002.200.000 að nafnvirði.
Viðbótin er seld til eigenda Veðskuldabréfasjóðs ÍV í samræmi við
fjárfestingarloforð. Stærð flokksins verður eftir stækkun ISK 7.252.200.000.
Sjóðurinn fullnýtir þar með heimild til útgáfu skuldabréfa sem skv. reglum
sjóðsins og útgáfulýsingu bréfsins er ISK 7.252.200.000.

Áætluð taka skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ Iceland hf.

Sótt hefur verið um töku bréfanna/stækkunarinnar til viðskipta á Aðalmarkaði
Nasdaq á Íslandi samhliða útgáfu þeirra. Fyrsti viðskiptadagur verður 29. júní
2016.

Skilmálar skuldabréfanna

Skuldabréfin eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs og bera fasta 3,5% vexti.
Vextir greiðast einu sinni á ári, þann 1. maí ár hvert, af verðtryggðum
höfuðstól, en höfuðstóll greiðist á lokagjalddaga þann 1. maí 2044. Bréfið var
fyrst gefið út 8. maí 2014. Fyrsti greiðsludagur vaxta var 1. maí 2015.

Auðkenni skuldabréfaflokksins

Auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi NASDAQ Iceland hf. er VIV 14 1,
ISIN númer bréfanna er IS IS0000024818. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjá
Nasdaq Verðbréfamiðstöð hf.




[HUG#2022465]