2016-06-22 14:42:58 CEST

2016-06-22 14:42:58 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Breyting á útboði


Reykjavík, 2016-06-22 14:41 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Ákveðið hefur verið að
fresta skuldabréfahluta útboðs sem Orkuveita Reykjavíkur efnir til 23. júní
2016. 

Boðnir verða til sölu víxlar til 9 mánaða fyrir allt að 3 milljarða króna í
nýjum flokki, OR300317, samanber tilkynningu til Kauphallar 16. júní 2016.
Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð, þar sem víxlar verða seldir á
hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður, en OR áskilur sér rétt til að taka hvaða
tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Arion banki hefur umsjón
með útboðinu. 

Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega næsta virka dag eftir útboð með
fyrirvara um staðfestingu stjórnar útgefanda 27. júní næstkomandi. 

Viðræður standa yfir vegna mögulegrar endurfjármögnunar á skuldabréfi sem er á
gjalddaga í desember 2016. Heildarfjárhæð þess er 4,5 milljarðar. 


         Nánari upplýsingar veita:
         Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion
banka hf., í síma 444-7337 eða netfanginu verdbrefamidlun@arionbanki.is 
         Brynja Kolbrún Pétursdóttir forstöðumaður Fjárstýringar og greininga
OR, í síma 516-6100 eða netfanginu brynja.kolbrun.petursdottir@or.is