2014-03-14 17:00:00 CET

2014-03-14 17:00:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. hinn 5. febrúar sl. varðandi
gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 18. mars nk.  kom fram í
útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í
tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 14.
mars. 

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra
skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er
109,568620 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum
(e. dirty price) miðað við uppgjörsdag  21. mars 2014 (ávöxtunarkrafa 2,85%).1 

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).





1 Hreint verð (e. clean price) er 102,2.