|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
2023-10-02 10:49:32 CEST 2023-10-02 10:49:27 CEST REGULATED INFORMATION Nova Klúbburinn hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsNova Klúbburinn hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 39. viku 2023 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 12.165.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 16. maí 2023. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2024. Nova Klúbburinn átti 51.000.000 hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 54.000.000 hluti, eða um 1,41% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 234.587.500 kr. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir. Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is ![]() |
|||||||||||||||||||||||||
|