2011-03-03 16:21:23 CET

2011-03-03 16:22:24 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Landsvirkjun og Íslandsbanki framlengja og stækka veltilán í íslenskum krónum



Landsvirkjun og Íslandsbanki skrifuðu í dag, 2. mars, undir samning um að
framlengja velti­lán að fjárhæð 3 milljarðar króna og jafnframt að gera nýtt
veltilán að fjárhæð 2 milljarðar króna. 

Lánstími veltilánanna er þrjú ár og ber lánið Reibor millibankavexti auk mjög
hagstæðs álags. Lánið er svokallað veltilán og getur Landsvirkjun dregið á það
eftir þörfum með litlum fyrirvara. Veltiláninu er ætlað að auka enn frekar
aðgengi Landsvirkjunar að fyrirvaralítilli fjármögnun í íslenskum krónum og þar
með bæta lausafjárstöðu fyrirtækisins sem er afar góð fyrir. 



Nánari upplýsingar veita:

Kristján Gunnarsson, deildarstjóri fjármáladeildar,
í síma 515 9028, netfang: kristjan@lv.is og

Davíð Ólafur Ingimarsson, yfirmaður lánamála,
í síma 515 9233, netfang: davidi@lv.is.