|
|||
2011-04-14 16:25:44 CEST 2011-04-14 16:26:45 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirMatsfyrirtækið Standard & Poor's hefur sett lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar á athugunarlista með neikvæðum horfumMatsfyrirtækið Standard & Poor‘s setti í dag lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar á athugunarlista með neikvæðum horfum. Samkvæmt matsfyrirtækinu er búist við að lánshæfiseinkunnir verði á athugunarlista næstu vikur og að tekin verði afstaða innan þess tíma. Núverandi lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar hjá S&P eru BB+ fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri og innlendri mynt. Skammtímaeinkunnir Landsvirkjunar eru B-1 í erlendri og innlendri mynt. Allar lánshæfiseinkunnir eru með neikvæðum horfum. Breyting þessi endurspeglar samkonar breytingu sem Standard & Poor‘s gaf út í gær fyrir Ríkissjóð Íslands. Að mati Landsvirkjunar hefur þessi breyting ekki í för með sér áhrif á núverandi skuldbindingar fyrirtækisins. Sjá viðhengi, |
|||
|