|
|||
2013-08-02 17:26:39 CEST 2013-08-02 17:27:40 CEST REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - FyrirtækjafréttirStandard and Poor´s breytir horfum á matseinkunn Tryggingamiðstöðvarinnar úr stöðugum í neikvæðar.Matsfyrirtækið Standard and Poor´s hefur breytt horfum á matseinkunn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) úr stöðugum í neikvæðar. 26. júlí sl. tilkynnti matsfyrirtækið að horfur á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hefðu breyst úr stöðugum í neikvæðar. Telur fyrirtækið að meta beri horfur TM í þessu efni með sama hætti og íslenska ríkisins. Kjarnaeinkunn (e. anchor) TM er bbb sem er einu þrepi hærra en heildareinkunnin, en matseinkunn TM er sett í BBB- vegna lánshæfismats íslenska ríkisins. Meðfylgjandi er tilkynning Standard and Poor´s um breytinguna. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson forstjóri TM. s. 515 2000. |
|||
|