2011-06-01 18:03:49 CEST

2011-06-01 18:04:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Afdrif tillögu Reykjaneshafnar til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn


Þann 31. maí 2011 setti Reykjaneshöfn fram tillögu til lánveitenda sinna og
eigenda fjármálagerninga útgefnum af Reykjaneshöfn (hér eftir „kröfuhafar“) um
endurfjármögnun stofnunarinnar. 

Kröfuhafar Reykjaneshafnar eru samtals tuttugu talsins. Tillagan þarf samþykki
allra kröfuhafa nema Lánasjóðs Sveitarfélaga til að ná fram að ganga, eða
samtals nítján kröfuhafa. Af þessum nítján kröfuhöfum hafa allir samþykkt
tillöguna. Telst því tillagan samþykkt. 

Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og
hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.