2010-11-03 16:20:35 CET

2010-11-03 16:21:35 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um breytingu á tillögu til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af Reykjaneshöfn


Í samráði við kröfuhafa hefur Reykjaneshöfn ákveðið að breyta áður tilkynntri
tillögu sinni þannig að frestur kröfuhafa til að samþykkja hana er lengdur og
verður til og með 30. nóvember 2010 (var til og með 17. nóvember 2010). Af
þessu leiðir að Reykjaneshöfn mun tilkynna um afdrif tillögunnar þann 1.
desember 2010 (var 18. nóvember 2010). 

Þá er að ósk kröfuhafa bætt inn í tillöguna ákvæði þess efnis að allir
kröfuhafar hafi rétt til gjaldfellingar krafna sinna þann 1. maí 2011 ef ekki
tekst að koma fjármálum Reykjaneshafnar í viðundandi horf fyrir þann tíma. 

Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og
hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222.