2015-10-29 17:12:15 CET

2015-10-29 17:13:16 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarðabyggð - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016 og þriggja ára áætlun 2017-2019


Fimmtudaginn 29. október 2015 var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Fjarðabyggðar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og stofnana fyrir árið 2016 og
þriggja ára áætlun fyrir árin 2017-2019.  Dagsetning seinni umræðu
bæjarstjórnar um fjárhagsáætlun 2016 og þriggja ára áætlun 2017-2019 liggur
ekki fyrir, en henni skal, lögum samkvæmt vera lokið fyrir 15. desember n.k.. 

Nokkur óvissa er á þessum tímapunkti um endanlega niðurstöðu áætlunarinnar
vegna aðstæðna í ytra umhverfi sveitarfélagsins, auk þess sem vinna þarf frekar
að leiðum til aukinnar hagræðingar í rekstri A hluta sveitarfélagsins. Tillagan
þarfnast af þeim sökum lengri umfjöllunar en oft áður á milli umræðna í
bæjarstjórn og kann það að hafa áhrif á efnislega niðurstöðu hennar. Þá liggja
enn ekki fyrir niðurstöður í kjaraviðræðum fjölda starfsmanna sveitarfélaga og
ekki heldur endanlegir útreikningar á tekjumissi Fjarðabyggðar vegna
innflutningsbanns Rússlands. Sett hefur verið varúðarfærsla í tekjuáætlun
sveitarfélagsins vegna þessa. 

Rekstrarafgangur samstæðu A og B hluta á árinu 2016 fyrir fjármagnsliði nemur
701 m.kr.  Þar af er rekstrarafgangur A hluta 233 m.kr.  Að teknu tilliti til
fjármagnsliða er rekstrarafgangur hjá samstæðu A og B hluta áætlaður að fjárhæð
244 m.kr. en rekstrarhalli í A hluta að fjárhæð 49 m.kr.  Þriggja ára áætlun
gerir ráð fyrir rekstrarhalla af A hluta en rekstrarafgangi af samstæðu öll
árin. 

Eigið fé samstæðu nemur 2.926 m.kr. í árslok 2016 og eiginfjárhlutfall 24,8%. 
Í árslok 2019 er gert ráð fyrir að eigið fé samstæðu nemi 3.919 m.kr. og
eiginfjárhlutfallið verði um 32,1%.  Í A hluta er eigið fé neikvætt um 332
m.kr. í árslok 2016.  Þriggja ára áætlunin gerir áfram ráð fyrir neikvæðu eigin
fé í A hluta og í árslok 2019 verði það neikvætt um 439 m.kr. 

Handbært fé frá rekstri í samstæðunni nemur 1.067 m.kr. á árinu 2016,
fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 810 m.kr., lántaka til
endurfjármögnunar 784 m.kr. og afborganir langtímalána 1.322 m.kr.  Handbært fé
í samstæðu verður 278 m.kr. í árslok 2016 og lækkar um 274 m.kr. frá ársbyrjun. 

Skuldaviðmið samstæðu Fjarðabyggðar verður komið undir 150% í árslok 2015 en
áætlað 141% í árslok 2016.  Skuldaviðmið samkvæmt lögum verður því komið undir
lögbundið hámark sem er fagnaðarefni fyrir Fjarðabyggð.  Skuldir og
skuldbindingar samstæðu, sem hlutfall af heildartekjum, er áætlað 154,3% í
árslok 2016 og 142,88% í árslok 2019.  Framlegðarhlutfall (EBIDTA) er áætlað um
20% í samstæðu og um 10% í A hluta á tímabilinu 2016 - 2019 og helst nokkuð
stöðugt í langtímaáætlunum sveitarfélagsins. Sveitarfélagið hefur verið í góðum
samskiptum við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna skuldastöðu
sveitarfélagsins. 

Stærstu fjárfestingaverkefni næstu ára eru lok framkvæmda við nýjan leikskóla á
Norðfirði, áframhaldandi þátttaka í ofanflóðavörnum, stækkun hafnarmannvirkja
vegna aukinna umsvifa í hafnsækinni starfsemi auk ýmissa minni verkefna. 

Áætlunin fyrir árið 2016 gerir ráð fyrir 4,3% meðalbreytingum verðlags milli
áranna 2015 og 2016 en vegna mikillar óvissu í kjarasamningum eru áhrif
væntanlegra kjarasamninga ekki metnar sem og vænt hækkun útsvarstekna á móti
auknum launaútgjöldum. Gert er ráð fyrir því að endanlega niðurstaða vegna
þessa liggi fyrir við aðra umræðu um fjárhagsáætlun ársins 2016 

Í fjárhagsáætluninni er lögð áframhaldandi áherslu á velferð fjölskyldufólks í
Fjarðabyggð. Fæðisgjaldskrá grunnskóla og gjaldskrá leikskóla og tónlistarskóla
standast samanburð við önnur sveitarfélög, sbr. systkinaafslátt  í leikskólum
sem og milli frístundaheimila og leikskóla. Systkinaafsláttur leikskólagjalda
er óbreyttur og er, ásamt tónlistarskólagjöldum, með því hagstæðasta sem gerist
á landinu. 

Sterkir innviðir Fjarðabyggðar draga að sér áhuga fjárfesta. Hefur þessi áhugi
einkum beinst að atvinnuuppbyggingu í hafnsækinni starfsemi, s.s. vegna
olíuleitar á Drekasvæðinu. Þá kallar sterkur og vaxandi sjávarútvegur í
sveitarfélaginu á auknar framkvæmdir í hafnarmannvirkjum.  Framangreint sýnir
sterka stöðu sveitarfélagsins til framtíðar litið, sem endurspeglast m.a. í
þeirri fjárhagsáætlun sem lögð var fram í bæjarstjórn Fjarðabyggðar í dag. 



Nánari upplýsingar um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar veita Páll Björgvin
Guðmundsson bæjarstjóri og Snorri Styrkársson fjármálastjóri í síma 470-9000.