2015-03-30 11:22:57 CEST

2015-03-30 11:25:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

Arion banki selur 13,25% í Reitum á meðalgenginu 63,875


  -- Söluandvirði nemur 6,4 milljörðum króna.
  -- Um 3.600 fjárfestar óskuðu eftir að kaupa hlutabréf í Reitum.
  -- Heildareftirspurn var 25,5 milljarðar.
  -- Markaðsvirði hlutafjár Reita er um 48 milljarðar króna.

Almennu útboði Arion banka á hlutabréfum í Reitum fasteignafélagi hf. lauk
síðastliðinn föstudag, þar sem um 3.600 fjárfestar óskuðu eftir að kaupa
hlutabréf fyrir samtals um 25,5 milljarða króna. Bankinn bauð til sölu 100
milljónir hluta í félaginu sem jafngilda 13,25% hlutafjár, en nú liggur fyrir
að 3,31% hlutafjár verða seld á genginu 63,5 krónur á hlut í tilboðsbók A (þar
sem mögulegt verðbil var 55,5-63,5) og 9,94% seld á genginu 64,0 í tilboðsbók B
(þar sem lágmarksgengi var 55,5). Heildarsöluandvirði útboðsins nemur því
tæplega 6,4 milljörðum króna og vegið meðalgengi 63,875 krónur á hlut.
Markaðsvirði alls hlutafjár í Reitum er rúmlega 48 milljarðar króna þegar miðað
er við niðurstöðu útboðsins. 

Í ljósi mikillar þátttöku verður hámarksúthlutun til hvers fjárfestis í
tilboðsbók A um 520 þúsund krónur að kaupverði. Áskriftir fyrir allt að 500
þúsund krónum verða ekki skertar. Áskriftir sem bárust á verði yfir genginu
64,0 krónur á hlut í tilboðsbók B verða óskertar en áskriftir sem bárust á því
gengi verða skornar niður hlutfallslega og nemur heildarskerðing þeirra um 650
milljónum króna. 

Fjárfestum verða sendar upplýsingar um úthlutun ásamt greiðslufyrirmælum eftir
að Kauphöll Íslands hefur staðfest að hlutir í Reitum fasteignafélagi hf. verði
teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Gert er ráð fyrir að
eindagi greiðsluseðla vegna útboðsins verði 7. apríl næstkomandi.
Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingarbankasviðs Arion banka hefur umsjón með útboðinu
og fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöll en áætlað er að fimmtudaginn 9.
apríl næstkomandi geti viðskipti hafist með hluti í Reitum á Aðalmarkaði. 

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Skráning Reita á markað er sú fimmta sem Arion banki hefur umsjón með. Okkur
finnst gleðilegt að hafa átt forgöngu um að byggja upp íslenskan
hlutabréfamarkað á undanförnum árum og um leið gefið fjárfestum tækifæri til að
eignast hluti í fyrirtækjum sem eiga það sammerkt að vera meðal burðarstólpa
íslensks atvinnulífs. Reitir eru stærsta fasteignafélagið á sínu sviði,
fjárhagslega sterkt og býr yfir hágæða eignasafni, taustum viðskiptavinum og
öflugu starfsfólki. Félagið mun því sóma sér vel í Kauphöll Íslands.“ 

Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita:

„Ég býð nýja hluthafa velkomna og þakka það traust sem þeir sýna okkur með
þátttöku í útboðinu. Við endurfjármögnun félagsins í lok síðasta árs keypti
hópur lífeyrissjóða stóran hlut í félaginu og það er ánægjulegt að sjá nokkra
þeirra bæta frekar við eignarhlut sinn nú í útboðinu en í þeim hópi eru einmitt
þeir tveir aðilar sem eiga stærstu einstöku úthlutanir í útboðinu eða um 2% í
félaginu hvor um sig. Við fögnum því jafnframt að með þeirri fjölgun sem nú er
að verða í hluthafahópnum fáum við breiðan hóp af bæði fagfjárfestum og
einkafjárfestum til liðs við félagið og hlökkum til að eiga með þeim samleið
inn í Kauphöll Íslands.“ 

Nánari upplýsingar veita

Halldór Bjarkar Lúðvígsson, framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs Arion
banka, í síma 444 7000 

Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, í síma 856 7108

Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, í síma 575 9000