2012-10-26 11:50:56 CEST

2012-10-26 11:51:57 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Reykjavíkurborg – Breyting á útgáfuáætlun 2012


Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 25. október breytingu á útgáfuáætlun. Ný
útgáfuáætlun gerir ráð fyrir að gefin verði út skuldabréf að nafnverði
3.115.000.000 ISK í stað 6.230.000.000 ISK. 

Reykjavíkurborg hefur verið að gefa út skuldabréf í flokkum RVK 09 1 og RVK 19
1. Útgáfa á RVK 09 1 hefur verið 1.575.000.000 ISK það sem af er árinu 2012 og
útgáfa RVK 19 1 nemur 585.000.000 ISK. Samtals nemur því útgáfa ársins
2.160.000.000 ISK. 

Samkvæmt breyttri útgáfuáætlun á eftir að gefa út skuldabréf að nafnverði
955.000.000 ISK og fyrirhuguð eru útboð þann 21. nóvember og 12. desember nk. 



Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson

Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

Sími: 693-9321