2018-06-21 17:31:00 CEST

2018-06-21 17:31:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Útboð ríkisvíxla RIKV 18 1115


Mánudaginn 25. júní kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokknum RIKV 18 1115 sem er með gjalddaga 15. nóvember 2018.

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði.

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 27. júní 2018.

Sótt verður um að RIKV 18 1115 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi miðvikudaginn 27.júní 2018.

Nánari upplýsingar veitir Laufey Ómarsdóttir, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9631.

Viðhengi