|
|||
2024-05-02 17:35:00 CEST 2024-05-02 17:35:09 CEST REGULATED INFORMATION Kvika banki hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Kvika banki hf.: Afkoma Kviku banka á fyrsta ársfjórðungi 2024Á stjórnarfundi þann 2. maí 2024 samþykktu stjórn og forstjóri árshlutauppgjör samstæðu Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir fyrsta ársfjórðung 2024. Í árshlutareikningi samstæðu Kviku fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024 er tryggingafélagið TM tryggingar hf. („TM“) flokkað sem eign haldið til sölu. Þar af leiðandi og í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla færir samstæðan tekjur af tryggingastarfsemi sinni í einni línu í rekstrarreikningi sem hagnað eftir skatta af aflagðri starfsemi. Samanburðartölur við rekstur ársins 2023 hafa verið uppfærðar til samræmis. Helstu atriði fyrsta ársfjórðungs 2024:
Helstu tekjuliðir af banka- og eignastýringarstarfsemi:
Afkoma af eignum haldið til sölu:
Helstu atriði efnahags:
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku: „Rekstur bankastarfsemi Kviku var prýðilegur á fyrsta ársfjórðungi og ánægjulegt að sjá umtalsverða hagnaðaraukningu af starfseminni milli ára. Hagnaður fyrir skatta á fyrsta ársfjórðungi, án afkomu TM, nam 1.215 milljónum króna, samanborið við 895 milljónir króna á sama tímabili árið 2023 og hækkar því um 36% frá árinu áður. Nær allir tekjuliðir jukust milli ára á sama tíma og vel gekk að halda aftur af kostnaði. Þrátt fyrir þráláta verðbólgu og umtalsverðar launahækkanir náðist að halda rekstrarkostnaði nánast óbreyttum milli ára. Allar viðskiptaeiningar bankans gengu vel á fyrsta ársfjórðungi og ánægjulegt er að sjá viðsnúninginn sem hefur verið í rekstri bankans í Bretlandi eftir krefjandi umhverfi undanfarin tvö ár. Arðsemi af efnislegu eigin fé bankastarfseminnar var 15,5%, sem er nokkuð undir langtímamarkmiði okkar en við sjáum þess merki að við munum nálgast það markmið á næstu misserum. Tryggingarekstur TM var í takt við áætlanir og keimlíkur fyrsta fjórðungi síðasta árs, en fyrsti fjórðungur ársins er að öllu jöfnu sá þyngsti í rekstri tryggingafélaga. Markaðsaðstæður voru hins vegar óhagstæðar á tímabilinu og fjárfestingatekjur félagsins voru því talsvert undir væntingum. Hagnaður fyrir skatta, að meðtalinni afkomu TM, nam 1.345 milljónum króna. Arðsemi efnislegs eigin fjár fyrir skatta var 12,1%. Vinna við lúkningu endanlegrar áreiðanleikakönnunar og undirritun kaupsamnings við Landsbankann vegna sölu TM hefur gengið ágætlega og mun bankinn halda markaðnum upplýstum eftir því sem mál þróast.“ Kynningarfundur og fjárfestakynning Meðfylgjandi er fjárfestakynning. Að auki mun upptaka með enskum texta vera gerð aðgengileg á vefsvæði Kviku. Viðhengi
|
|||
|