2016-06-02 01:17:03 CEST

2016-06-02 01:17:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Veðskuldabréfasjóður ÍV - Fyrirtækjafréttir

Veðskuldabréfasjóður ÍV: Fyrirhuguð stækkun skuldabréfaflokksins VIV 14 1


Veðskuldabréfsjóður ÍV er fagfjárfestasjóður í rekstri ÍV sjóða hf. Stjórn ÍV
sjóða hf. samþykkti á fundi sínum 25. maí 2016 að stækka skuldabréfaflokkinn VIV
14 1 sem gefinn er út af sjóðnum um ISK. 2.002.200.000 að nafnverði. Eftir
stækkun verður flokkurinn ISK 7.252.200.000 að nafnverði.

Bréfin eru seld hlutdeildarskírteinishöfum Veðskuldabréfasjóðs ÍV, í samræmi við
fjárfestingarloforð.

Í kjölfar birtingar uppfærðrar útgáfulýsingar er áætlað að bréfin verði tekin
til viðskipta á Nasdaq Iceland í viku 24 til 25 nk.


Íslensk verðbréf hafa umsjón með stækkun flokksins. Frekari upplýsingar um
stækkunina og sjóðinn má nálgast hjá Íslenskum verðbréfum og ÍV sjóðum í síma
460-4700 eða á vefsíðu sjóðsins www.viv.is.


[HUG#2017411]