|
|||
2012-03-29 11:24:00 CEST 2012-03-29 11:25:00 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirKaup Lánamála ríkisins á ríkisskuldabréfum samhliða gjaldeyrisútboði Seðlabanka ÍslandsÍ tilkynningu Lánamála ríkisins þann 14. mars 2012 kemur fram að kaupendur gjaldeyris í útboðum Seðlabanka Íslands geti selt ríkissjóði ríkisvíxla og ríkisbréf með gjalddaga fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á gjaldeyriskaupum. Þann 22. mars tilkynntu Lánamálin kjörin sem buðust kaupendum gjaldeyris í útboðinu sem var haldið í gær, 28. mars. Lánamál ríkisins f.h. ríkissjóðs keyptu að nafnverði ríkisskuldabréf í eftirtöldum flokkum: RIKV 12 0416 Nafnverð: 2.140 m kr. Rétt er að benda á að ríkisverðbréfin þurfa svo að berast Lánamálum fyrir klukkan 11.00 þann 2. apríl. Greiðslur eiga sér stað eftir afhendingu bréfanna og eigi síðar en klukkan 16.00 sama dag. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9633. |
|||
|