2009-02-09 10:31:43 CET

2009-02-09 10:32:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Nýherji hf. - Niðurstöður hluthafafunda

- Niðurstöður aðalfundar Nýherja 6. febrúar 2009


Eftirfarandi var samþykkt á aðalfundi félagsins sem haldinn var í ráðstefnusal
Nýherja Borgartúni 37, kl. 16.00, þann 6. febrúar  2009: 



1.  Ársreikningur félagsins var lagður fram og samþykktur samhljóða.

2.  Fyrir fundinum lá tillaga um 20% arðgreiðslu. Í máli stjórnarformanns kom
    fram að í viðræðum við lánardrottna félagsins hafi komið fram tilmæli um að
    ekki yrði greiddur út arður í ljósi þeirra alvarlegu aðstæðna sem nú ríkja.
    Stjórnarformaður lagði því af þessu tilefni fram breytingartillögu um að
    greiða ekki út arð fyrir árið 2008. Breytingartillaga stjórnarformanns var
    samþykkt samhljóða. 

3.  Samþykkt var tillaga um stjórnarlaun fyrir starfsárið 2008: Stjórnarformaður
    kr. 2.550.000, stjórnarmenn kr. 850.000 og varamaður kr. 63.000 fyrir hvern
    fund. 
4.  Samþykkt var að eftirtaldir skipi stjórn fyrir næsta starfsár: Benedikt
    Jóhannesson, Árni Vilhjálmsson og Guðmundur Jóh. Jónsson. Samþykkt var að
    varamaður verði Jafet S. Ólafsson.  	 

5.  Samþykkt var að endurskoðandi félagsins verði KPMG Endurskoðun hf.

6.  Samþykkt var tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum skv. 55.
    grein hlutafélagalaga, þar sem stjórn er heimilt fyrir hönd félagsins að
    kaupa allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga
    nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta má ekki vera meira en 20% hærra
    eða lægra en síðasta skráða gengi í Kauphöll Íslands. Gildistími
    heimildarinnar er allt að átján mánuðir. 

Ný stjórn skipti með sér verkum á stjórnarfundi, sem haldinn var í framhaldi
aðalfundar.  Benedikt Jóhannesson gegnir stöðu stjórnarformanns. Árni
Vilhjálmsson var kjörinn varaformaður.