2022-08-16 11:42:19 CEST

2022-08-16 11:42:19 CEST


Islandic
Reginn hf. - Fjárhagsdagatal

Reginn hf.: Birting uppgjörs annars ársfjórðungs 2022



Reginn hf. mun birta samþykkt uppgjör fyrir annan ársfjórðung ársins 2022, eftir lokun markaða mánudaginn 22. ágúst 2022.

Af því tilefni boðar Reginn hf. til opins kynningarfundar þriðjudaginn 23. ágúst nk. kl. 8:30 í Hafnartorgi Gallery. Gengið er inn um aðalinngang Hafnartorgs Gallery við Geirsgötu 17 en einnig er innangengt með rúllustiga úr bílakjallara undir Hafnartorgi. Innkeyrslur í bílakjallarann eru við Hörpu og Geirsgötu. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:

https://vimeo.com/event/2333433/embed/3731d56b78


Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins hf. mun kynna uppgjörið og svarar spurningum að kynningu lokinni.

Boðið verður upp á morgunverð.

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is.


Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson - Forstjóri Regins hf. - helgi@reginn.is - Sími: 512 8900 / 899 6262