|
|||
![]() |
|||
2012-12-19 15:32:35 CET 2012-12-19 15:33:36 CET REGULATED INFORMATION RARIK ohf. - FyrirtækjafréttirHluthafafundur RARIK ohfFrá hluthafafundi RARIK ohf. 19. desember 2012 Á hluthafafundi í RARIK ohf., kt. 520269-2669, Bíldshöfða 9, Reykjavík sem haldinn var þann 19. desember 2012 að Bíldshöfða 9 voru eftirfarandi mál tekin fyrir: 1. Tillaga um hækkun hlutafjár með yfirfærslu af yfirverðsreikningi, sem nemur sömu fjárhæð og ójafnað eigið fé 2. Tillaga um lækkun hlutafjár um sömu fjárhæð til jöfnunar á tapi Á fundinn mætti fulltrúi fjármálaráðuneytisins f.h. ríkissjóðs, sem er eini hluthafi félagsins. Eftirfarandi var samþykkt: 1. Hækkun á hlutafé félagsins Fyrir fundinum lá tillaga um hækkun hlutafjár með útgáfu jöfnunarhlutabréfa að nafnverði 2.809.310.601,- kr. með yfirfærslu af yfirverðsreikningi í samræmi við 1. mgr. 43. gr. sbr. 3. mgr. 100. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Tillagan var samþykkt. 1. Lækkun á hlutafé félagsins Fyrir fundinum lá tillaga um lækkun hlutafjár um 2.809.310.601,- kr. til jöfnunar taps í samræmi við 1. tl. 2. mgr. 51. gr. hlutafélagalaga. Tillagan var samþykkt. 1. Önnur mál Forstjóra félagsins var falið að tilkynna ofangreindar breytingar á félaginu. Fleiri mál voru ekki á dagskrá fundarins og var honum slitið. |
|||
|