2014-04-29 15:20:49 CEST

2014-04-29 15:21:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Samþykktir félags

Nýr sameignarsamningur og breytt eigendastefna Orkuveitu Reykjavíkur


Reykjavík, 2014-04-29 15:20 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Á eigendafundi Orkuveitu
Reykjavíkur, sem haldinn var 25. apríl 2014, undirrituðu fulltrúar
sveitarfélaganna þriggja sem eiga Orkuveituna - Reykjavíkurborgar (93,539%),
Akraneskaupstaðar (5,528%) og Borgarbyggðar 0,933%) - nýjan sameignarsamning
fyrir fyrirtækið. Jafnframt var undirrituð eigendastefna fyrir Orkuveitu
Reykjavíkur með lítilsháttar breytingum frá eigendastefnu sem samþykkt var
vorið 2012. Sameignarsamningurinn byggir á nýjum lögum  um Orkuveitu
Reykjavíkur, sem gengu í gildi 1. janúar 2014. Skjölin tvö höfðu hlotið einróma
samþykki í öllum sveitarstjórnum eigenda. 

Lög nr. 136/2013 um Orkuveitu Reykjavíkur leystu af hólmi eldri lög og var
nokkrum ákvæðum þeirra breytt í samráði við eigendur fyrirtækisins. Með
breytingu á lögum, sameignarsamningi og eigendastefnu bregðast eigendur við
gagnrýni og ábendingum, sem fram komu í úttekt á vegum eigenda og gefin var út
í ýtarlegri skýrslu í október 2012. Á meðal þess sem kveðið er á um er að; 

  -- Hlutverk fyrirtækisins er skýrt. Hefðbundin veituþjónusta er meginhlutverk
     þess og öll frávik frá því komi til kasta eigenda.
  -- Með einföldun laga eru stjórnhættir fyrirtækisins í auknu mæli færðir til
     eigenda.
  -- Í sameignarsamningi eru hlutverkaskipti eigenda, stjórnar og  stjórnenda
     skýrð.
  -- Eigendur skilgreina kröfu um arðsemi rekstursins, arðgreiðslur og viðmið í
     þeim efnum.
  -- Sú krafa er gerð að arðsemi verð tengd áhættu og fjármögnun einstakra
     rekstrarþátta.
  -- Gerð er krafa um að stjórn fyrirtækisins vísi óvenjulegum, veigamiklum eða
     stefnumarkandi ákvörðunum til eigenda.
  -- Ákvarðanir um nýjar virkjanir og framkvæmdir á óröskuðum svæðum skulu í
     öllum tilvikum bornar undir eigendur.

Af hálfu eigenda Orkuveitu Reykjavíkur var unnið að breytingunum á vettvangi
eigendanefndar, sem skipuð var með erindisbréfi árið 2010. Nefndin hefur nú
lokið störfum. 

Sameignarsamningur og eigendastefna Orkuveitu Reykjavíkur eru í viðhengjum.