|
|||
2022-12-01 18:11:24 CET 2022-12-01 18:11:24 CET REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarEik fasteignafélag hf.: Útboð á skuldabréfum 2. desember 2022Eik fasteignafélag hf. efnir til útboðs á nýjum skuldabréfaflokki EIK 25 1 og fer útboðið fram á morgun, föstudaginn 2. desember 2022. Flokkurinn er óverðtryggður og veðtryggður með tryggingasafni félagsins. Flokkurinn ber fasta 7,67% ársvexti, en greiðslur vaxta fara fram einu sinni á ári. Allur höfuðstóll flokksins greiðist með einni greiðslu á lokagjalddaga hans þann 9. desember 2025. Óskað verður eftir því að flokkurinn verði tekinn til viðskipta á Nasdaq Iceland í kjölfar útgáfu hans. Útboðið fer fram á föstum kjörum, og verður flokkurinn seldur á pari. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er föstudagurinn 9. desember 2022. Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq Iceland. Tilboðum skal skilað fyrir klukkan 16:00 á útboðsdegi, þann 2. desember 2022, til Verðbréfamiðlunar Íslandsbanka á netfangið vbm@isb.is. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Nánari upplýsingar veitir: Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s: 590-2209 / 820-8980. |
|||
|