2009-07-09 15:19:06 CEST

2009-07-09 15:20:03 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
Hf. Eimskipafélag Íslands - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

- Skipulagsbreytingar


Í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar er nú unnið að breytingum á
stjórnskipulagi félagsins. Markmiðið er að  einfalda skipulag, ná fram
hagræðingu í rekstri og reka áfram öflugt Eimskip sem er leiðandi í
flutningastarfsemi á Norður-Atlantshafi. Starfsemi Eimskips á Íslandi mun í
grófum dráttum skiptast í tvær einingar, annars vegar Sölu og þjónustu og hins
vegar Eimskip innanlands. Unnið er að frekari breytingum á heildarskipulagi
félagsins og mun verða tilkynnt um þær fyrir lok júlímánaðar. 

Matthías Matthíasson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Sölu og
þjónustu á Íslandi. Undir Sölu og þjónustu fellur sala í inn- og útflutningi
ásamt þjónustu og skjalavinnslu. Matthías hóf upphaflega störf hjá Eimskip árið
1983 og starfaði til ársins 2004. Matthías var m.a. sölustjóri í
millilandaflutningum, forstöðumaður inn-og útflutnings og framkvæmdastjóri
Eimskip UK. Hann hóf störf að nýju hjá Eimskip í apríl síðastliðnum, þá sem
framkvæmdastjóri sérverkefna. Matthías vinnur nú að því að ljúka ýmsum
sérverkefnum, m.a. á skrifstofu Eimskips í Hamborg og kemur að fullu til starfa
á Íslandi um miðjan júlí. 

Guðmundur Nikulásson mun taka við starfi framkvæmdastjóra Eimskips innanlands
og fellur þar undir rekstur á innanlandskerfi félagsins, rekstur Vöruhótels,
Flytjanda, vörudreifingar á höfuðborgarsvæðinu, hafnarsvæða á Íslandi og 
frysti- og kæligeymslna. Guðmundur hefur starfað hjá Eimskip síðan 1997 og
gegnt ýmsum trúnaðar- og stjórnunarstöðum. 


Starfslok

Í ljósi skipulagsbreytinga mun Guðmundur P. Davíðsson, framkvæmdastjóri
Eimskips á Íslandi, láta af störfum hjá Eimskip. Hann hóf störf hjá félaginu í
september 2007. Guðmundur stýrði starfsemi Eimskips á Íslandi sem nú hefur
verið skipt niður í tvö svið, Sölu og þjónustu og Eimskip innanlands, sem heyra
beint undir Gylfa Sigfússon forstjóra. 

Eimskip þakkar Guðmundi fyrir farsæl störf í þágu félagsins og óskar honum
velfarnaðar á nýjum vettvangi.