|
|||
2009-01-14 13:00:16 CET 2009-01-14 13:01:17 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga - Fyrirtækjafréttir- Áætlun Lánasjóðs sveitarfélaga 2009 (um útlán, greiðslur og útgáfu skuldabréfa)Áætluð útgáfa skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga árið 2009 til fjármögnunar nýrra útlána er 12 - 24 milljarðar króna. Lánasjóður sveitarfélaga áætlar að ný útlán sjóðsins verði á bilinu 12 - 24 milljarðar króna á árinu 2009, sem er nokkur lækkun frá áætlunum ársins 2008. Útboð skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga Áætlun 2009 1.H 2.H Alls 2009 Útgáfa 8 - 12 8 -12 16 - 24 Afborganir lána 4 - 5 1 - 2 5 - 7 Afborganir útlána 4 - 5 3 - 4 7 - 9 Tölur eru í milljörðum ISK. Lánasjóður sveitarfélaga áætlar að greiða lánadrottnum sínum á bilinu 5 - 7 milljarða króna árið 2009. Lánasjóðurinn áætlar að afborganir sveitarfélaga af lánum til lánasjóðsins verði á bilinu 7 - 9 milljarðar króna árið 2009. Lánasjóður sveitarfélaga lánar eingöngu það fé sem hann hefur fengið að láni, því veltur áætlun um útlán alfarið á því hvernig gengur að afla lánsfjár á árinu. Þrátt fyrir að mörg sveitarfélög hafi enn ekki samþykkt fjárhagsáætlanir fyrir 2009 þykir okkur ljóst er að töluverð ásókn verður í lánsfé frá sjóðnum og augljóslega ekki útséð með hvort sjóðurinn nær að afla fjár til að mæta öllum þeim óskum. Áætlun þessi miðast við núverandi aðstæður á markaði. Verði breytingar á markaðsaðstæðum má reikna með að ofangreind áætlun geti breyst. Lánasjóður sveitarfélaga endurskoðar áætlanir sínar hálfsárslega og oftar ef þörf krefur. |
|||
|