|
|||
![]() |
|||
2010-11-23 16:31:43 CET 2010-11-23 16:32:41 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstöður viðbótarútgáfu og skiptiútboðsÚtboð RIKB 12 0824 og RIKB 16 1013 viðbótarútgáfa. Samkvæmt 5. grein í skilmálum um útboð ríkisbréfa, sem haldið var 19. nóvember sl. stóð aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af andvirði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í RIKB 12 0824 fyrir 800 m.kr. og RIKB 16 1013 fyrir 95 m.kr og því nemur selt magn með uppgjöri 24. nóvember í flokknum RIKB 12 0824 alls 8.800 m.kr. og í flokknum RIKB 16 1013 alls 5.221 m.kr. að nafnvirði. Skiptiútboð niðurstöður Í síðasta útboði ríkisbréfa hjá Lánamálum ríkisins áttu bjóðendur kost á því að kaupa bréf í RIKB 12 0824 og RIKB 16 1013 með sölu á RIKB 10 1210, sem fellur á gjalddaga 10. desember nk. Að þessu sinni nýttu bjóðendur sér söluréttinn að upphæð 8.990 m.kr. að nafnvirði. |
|||
|