|
|||
2010-09-29 21:23:44 CEST 2010-09-29 21:24:44 CEST REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - FyrirtækjafréttirNýherji eykur hlutafé um 840 mkr að markaðsvirði og lýkur samningum við Arion banka og ÍslandsbankaStjórn Nýherja hf. hefur ákveðið að nýta heimild aðalfundar í febrúar síðastliðnum um að auka hlutafé félagsins um 120 mkr að nafnverði. Hefur félagið gengið frá samningum við fjárfesta um kaup á þessu hlutafé á genginu 7,0 og er heildar söluverð því kr. 840 mkr. Í þessari viku verður hlutafé að nafnvirði tæplega 28 mkr. skráð hjá Verðbréfaskráningu Íslands, en hlutafé að nafnverði 92 mkr. verður skráð í desember. Um helmingur hlutafjáraukningarinnar kemur frá nýjum hluthöfum. Eftir aukninguna í desember verður útgefið hlutafé félagsins 400 mkr. að nafnverði. Nýherji hefur jafnframt gengið frá samningum við Arion banka annars vegar og Íslandsbanka hins vegar um endurskipulagningu á langtímalánum félagsins, þar sem greiðslutími verður aftur með eðlilegum hætti. Til að lækka skuldir félagsins enn frekar hefur Nýherji gert samning um sölu á fasteign félagsins í Borgartúni 37 og er söluverðið 1.650 milljónir, en við það myndast söluhagnaður að fjárhæð 82 mkr. Samhliða hefur félagið gert 15 ára leigusamning um Borgartúni 37. Vegna skuldbreytingar úr erlendum lánum í innlend lækkar höfuðstóll lána. Heildaráhrif þeirrar lækkunar og áðurnefndrar sölu á Borgartúni 37 er hagnaður eftir skatta upp á um 150 milljónir króna miðað við stöðu í lok 2. ársfjórðungs 2010. Heildaráhrif aðgerðanna eru að eigið fé félagsins styrkist um nálægt einn milljarð króna á árinu 2010. Að loknum þessum aðgerðum er fjárhagsstaða Nýherja orðin sterk á ný og eiginfjárhlutfall félagsins verður yfir 30% í lok árs. Þá styrkist lausafjárstaða og veltufjárhlutfall félagsins verður aftur eðlilegt. Vaxtaberandi skuldir félagsins verða eftir samningana um 2,6 milljarðar króna. Greiðslutími lána verður á bilinu sjö til fimmtán ár. Vaxtaberandi skuldir hafa þá lækkað um helming frá 30. júní. 2010. „Rekstur Nýherja og dótturfélaga hefur styrkst á undanförnum ársfjórðungum og eru ágætar horfur um enn betri afkomu af rekstri samstæðunnar á næstu misserum. Á 2. ársfjórðungi var EBITDA frá rekstri félagsins 123 mkr., en áætlað er að á næsta ári verði hún að jafnaði um 160 mkr. á ársfjórðungi. Með ofangreindum breytingum er félagið aftur að ná fyrri fjárhagsstyrk samhliða því að rekstur félagsins skilar góðri afkomu.“ að sögn Þórðar Sverrissonar, forstjóra Nýherja. Nánari upplýsingar: Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, í síma +354 893 3630. |
|||
|