2015-06-02 19:32:51 CEST

2015-06-02 19:33:51 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Kaup og afhending á félögum Fastengis ehf. til Regins hf.


Þann 20. mars sl. var undirritaður kaupsamningur milli Regins hf. og Fastengis
ehf. um kaup Regins hf. á öllu hlutafé í Fjárvara ehf., Bréfabæ ehf. og
Sævarhöfða 2 ehf.  Fastengi ehf. er dótturfélag Miðengis ehf., sem er félag í
100% eigu Íslandsbanka. Kaupsamningur var með fyrirvara um fjármögnun kaupanna,
niðurstöðu áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Öllum
fyrirvörum hefur nú verið aflétt og félögin verið afhent Reginn hf. 

Eðli og umfang viðskiptanna

Eins og áður hefur komið fram kaupir Reginn hf. safn tæplega 80 eigna alls um
62.000 m2 að stærð. Kaupverð undirliggjandi fasteigna í félögunum þremur er um
5.900 m.kr. Engar þróunareignir eru í safninu. Reginn hf. hefur valið að skipta
hinu keypta eignasafni upp í þrjá megin flokka, skipting ræðst m.a. af verðmæti
eignanna, nýtingu þeirra, tækifærum til framtíðar sem og hvernig eignir falla
að núverandi safni Regins hf. Flokkarnir eru eftirfarandi: 

  -- Safn sem fellur beint inn í núverandi eignasafn Regins hf., útleiguhlutfall
     93%.  Alls 27 eignir sem eru um 70% af heildarvirði hins keypta, eða rúmar
     4.000 m.kr.
  -- Safn með lágu útleiguhlutfalli eða 7%, sem tekið verður til
     endurskipulagningar og aðlögunar að útleigumarkaði. Skilgreint sem „vara í
     vöruhillu Regins“.  Safnið er um 20% af heildarvirði hins keypta, eða um
     1.200 m.kr.
  -- Safn sem væntanlega verður selt í einingum eða í heild.  Eignir með
     útleiguhlutfall 28%. Safnið er um 10 % af heildarvirði hins keypta.

Eins og áður hefur verið kynnt er arðsemi kaupanna mismunandi eftir eðli
eignasafnanna. Sá hluti eignasafnsins sem fellur beint inn í núverandi
eignasafn Regins hf. sbr. hér að framan er með góða arðsemi við kaup eða
tæplega 8%. Safnið sem hér að framan er skilgreint sem „vara í hilluna“ og er
með lága nýtingu er eðli málsins samkvæmt með lága arðsemi við kaup. Það er mat
Regins hf. að arðsemi sé hægt að auka hratt eða upp í 10 - 12% á innan við
þremur árum.  Sá hluti sem áformað er að selja hefur hverfandi áhrif á rekstur
og afkomu félagsins  fram að sölu þeirra. Gert er ráð fyrir hagnaði við sölu
eininganna. 

Við mat á arðsemi kaupanna er gert ráð fyrir einskiptiskostnaði vegna
áreiðanleikakannana sem og kostnaði vegna endurskipulagningu þess hluta
eignanna sem falla ekki beint inn í safn Regins og /eða verða seldar. Við
áætlun á rekstrar- og stjórnunarkostnaði vegna safnsins er stuðst við
reynslutölur Regins hf. 



Fjármögnun viðskiptanna

Eins og áður hefur komið fram eru kaupin fjármögnuð að fullu með lántöku. Arion
banki hf. fjármagnar kaupin, en gengið var til samninga við bankann að
undangenginni verðkönnun. Kjörin eru sambærileg við þau lánskjör sem Reginn hf.
hefur notið á markaði. 



Varðandi frekari upplýsingar um eðli og umfang viðskiptanna er vísað til fyrri
tilkynningar þann 17. febrúar sl. um samkomulag um kaup á eignasafni Fastengis
ehf. og kynningar Regins hf. á ársreikningi þann 25. febrúar sl. en gögnin má
finna á heimasíðu félagsins, www.reginn.is/fjarfestar. 





Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson - Forstjóri - helgi@reginn.is - S: 512 8900 / 899 6262