|
|||
2009-10-30 09:15:20 CET 2009-10-30 09:16:21 CET REGULATED INFORMATION Verðbréfun hf. - Ársreikningur- 6 mánaða reikningur 2009Þann 29. október 2009 var stjórnarfundur Verðbréfunar hf. haldinn að Austurstræti 11, 101 Reykjavík, þar sem árshlutareikningur félagsins fyrir janúar til júní 2009 var lagður fram og samþykktur. Umfjöllun um árshlutareikninginn og ákvarðanir stjórnar og hluthafa Stjórn og hluthafar samþykktu árshlutareikning Verðbréfunar fyrir janúar til júní 2009 á fundi sínum 29.10.2009. Starfsemi Verðbréfunar hf. var í lágmarki á tímabilinu. Lánasafn Verðbréfunar hefur lækkað frá 31. desember 2008 um 1,7%. Útdráttur skuldabréfa hefur verið í jafnvægi á tímabilinu og verið dregið út úr safnbréfaflokkum í samræmi við inngreiðslur lána. Rekstrarhagnaður Verðbréfunar hf. janúar til júní 2009 var neikvæður um 129.000 kr. fyrir og eftir útreikning skatta. Heildareignir félagsins hafa lækkað um 18 miljónir króna frá 31. desember 2008 eða um 4,7%. Eigið fé félagsins lækkaði á sama tíma um 129.000 kr. frá fyrra ári. Framtíð félagsins Stjórn Verðbréfunar hf. hefur leitað til eiganda félagsins um að rekstri Verðbréfunar hf. verði hætt. Sú ákvörðun hefur verið staðfest af NBI hf. Ákveðið hefur verið að NBI hf. kaupi útistandandi skuldabréf Verðbréfunar hf. á sama verði og uppgreiðsluvirði safnbréfa félagsins. Upplýsingar um ársreikning Verðbréfunar gefur Haukur Agnarsson, framkvæmdastjóri Verðbréfunar í síma 410 7735 |
|||
|