2012-07-03 17:31:00 CEST

2012-07-03 17:31:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026


SKIPTIÚTBOÐ

Föstudaginn 6. júlí kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokknum RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026.
Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa
er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 10.
júlí 2012. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 11. júlí 2012.

                                  SKIPTIÚTBOÐ

Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 14 0314 og RIKB 22 1026
með sölu á RIKB 12 0824, sem fellur á gjalddaga 24. ágúst nk. Lánamál ríkisins
kaupa RIKB 12 0824 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 99,95
(103,689071 með áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 11.
júlí 2012. Til skýringar, jafngildir verðið 4,50% í flötum vöxtum. Andvirði
bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum
bréfum. Þeir sem vilja nota RIKB 12 0824 sem greiðslu í útboðinu þurfa að
tilkynna Lánamálum ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 10. júlí
2012. 

Fjárfestar sem eiga bréf í RIKB 12 0824 og hafa áhuga á að endurfjárfesta í
öðrum ríkisbréfum eru sérstaklega hvattir til þess að taka þátt í þessu útboði
með því að hafa samband við næsta banka.