|
|||
2013-04-05 13:45:00 CEST 2013-04-05 13:45:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 15 0408 OG RIKB 31 0124Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 15 0408 og RIKB 31 0124 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 15 0408: Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.150 m.kr. að nafnverði. 9 tilboðum var tekið fyrir 5.150 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,800 (4,61% ávöxtunarkröfu). RIKB 31 0124: Alls bárust 25 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.890 m.kr. að nafnverði. 24 tilboðum var tekið fyrir 6.790 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 98,250 (6,67% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 9. apríl. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 10. apríl 2013. |
|||
|