2013-02-14 18:55:12 CET

2013-02-14 18:56:13 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Reginn hf. – Tilkynning um samkomulag um leigu og samþykki á tilboðum í kaup á fasteignafélögum með fyrirvörum.


Reginn hf. og Verkfræðistofan Verkís hf.  kt.  611276-0289 hafa undirritað
leigutilboð um fasteignina Ofanleiti 2, Reykjavík sem er í eigu Regins hf.
Ofanleiti 2 er alls 8.012 m2 að stærð.  Samkvæmt samkomulaginu verður húsnæðið
afhent í áföngum.  Sömuleiðis verður lagt út í framkvæmdir samkvæmt
skilalýsingu milli aðila.  Undirritun leigutilboðs milli aðila er með
fyrirvörum þar á meðal um afhendingartíma, umfang breytinga og niðurstöðu
áreiðanleikakönnunar vegna kaupa á núverandi eignum sem hýsa starfsemi Verkís. 
Að auki er fyrirvari um samþykki stjórna félaganna. 

Reginn hf. hefur samhliða gert tilboð í kaup á ýmsum fasteignafélögum sem eiga 
fasteignir sem hýsa núverandi starfsemi Verkíss. Þetta eru eftirfarandi félög: 

Stórhöfði ehf. og Goshóll ehf. en félögin eiga hluta Suðurlandsbrautar 4,
Reykjavík. 

Almenna byggingarfélagið ehf. en félagið á hluta Fellsmúla 26 í Reykjavík.

VIST ehf. en félagið á eignirnar Ármúli 4 og 6 í Reykjavík. Hluta Austurvegs 8a
og 10, á Selfossi.  Kaupvang 3b á Egilsstöðum og hluta Hafnarstrætis 1 á
Ísafirði. 

Samþykkt leigutilboð milli aðila nær einnig til eigna á Ísafirði, Egilstöðum og
Selfossi. 

Tilboðin í fasteignafélögin hafa verið samþykkt en eru með fyrirvörum s.s. um
áreiðanleikakönnun,  samþykki  hluthafa félaganna og stjórn Regins hf. 

Aðilar stefna að því að fyrir liggi ákvörðun þann 8. mars nk. um hvort
fyrirvarar verði felldir niður.  Á það við bæði um leigutilboðið og kaup á
fasteignunum. 

Áætluð aukning á EBITDA samstæðunnar vegna útleigu á Ofanleiti 2 til eins aðila
er um 4%. 

Ekki liggur fyrir um nákvæm áhrif á EBITDA Regins samstæðunnar vegna eigna sem
verið er að kaupa og eru ekki að fullu útleigðar nú, en gera má ráð fyrir að
áhrifin verði allt að 5 % hækkun á EBITDA félagsins. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262