|
|||
![]() |
|||
2016-12-22 14:51:39 CET 2016-12-22 14:51:39 CET BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Kaup Fjarskipta hf. á rekstri og eignum 365 miðla hf. - Samkomulag hefur náðst um kaupverð - Kaupsamningsgerð hefst í byrjun nýs árs.Þann 31. ágúst sl. var tilkynnt um fyrirhuguð kaup Fjarskipta á eignum og rekstri ljósvakamiðla og fjarskiptaþjónustu 365 miðla, með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar sem nú er á lokastigi. Aðilar hafa náð nýju samkomulagi um kaupverð á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga úr fyrrgreindri áreiðanleikakönnun og áframhald einkaviðræðna. Það er mat aðila að hagnaður Fjarskipta fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) af ljósvaka- og fjarskiptastarfsemi 365 miðla, að viðbættum samlegðaráhrifum, geti numið u.þ.b. 1.600 milljónum króna á ársgrundvelli auk annarra jákvæðra áhrifa á frjálst sjóðsflæði Fjarskipta. Kaupverð miðað við framangreint verður 2.200 milljónir króna sem verða greiddar annars vegar með 32.380.952 hlutum í Fjarskiptum á genginu 52,50 kr. á hlut, og hins vegar 500 milljónum króna með reiðufé. Einnig yfirtaka Fjarskipti vaxtaberandi skuldir að fjárhæð 4,6 milljörðum króna. Kaupin eru enn háð skilyrðum og forsendum sem útfærð verða nánar í kaupsamningi aðila. Ofangreint samkomulag um breytt kaupverð greiðir fyrir kaupsamningsgerð, sem stefnt er að því að ljúki á fyrstu vikum nýs árs. Áfram er því ráðgert að ganga frá kaupunum um mitt ár 2017, að fengnu samþykki viðkomandi eftirlits- og hagsmunaaðila. Nánar verður gert grein fyrir forsendum viðskiptanna þegar kaupsamningur liggur fyrir. Frekari upplýsingar veitir: Bára Mjöll Þórðardóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptamála, í síma 6699299 eða á barath@vodafone.is. [] |
|||
|