2013-10-07 19:08:18 CEST

2013-10-07 19:09:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur september 2013


Í september flutti félagið yfir 215 þúsund farþega í millilandaflugi og voru
þeir 9% fleiri en í september á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam
15% og sætanýting var 78,1% samanborið við 81,1% á sama tíma í fyrra. Farþegum
fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 15,4% og voru þeir 51% af
heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í september. 

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 25 þúsund í september og
fækkaði um 13% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 14%
samanborið við september 2012. Sætanýting nam 71,2% og jókst um 1,2
prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% á milli
ára. Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári. Fjöldi framboðinna
gistinótta á hótelum félagsins jókst um 3% milli ára. Herbergjanýting var 69,8%
samanborið við 76,5% í september í fyrra. 

MILLILANDAFLUG                      SEP 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                     215.205           9%  1.788.903          12%
Sætanýting                           78,1%  -3,0 %-stig      80,2%  -1,4 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000)    819,6          15%    6.496,3          17%
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG     SEP 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                      24.970         -13%    239.774         -11%
Sætanýting                           71,2%   1,2 %-stig      71,6%   3,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000)     13,1         -14%      123,9         -14%
LEIGUFLUG                           SEP 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------------
Flugvélanýting                       96,7%  -3,3 %-stig      91,1%  -1,2 %-stig
Seldir blokktímar                    2.389          -7%     21.491         -10%
FRAKTFLUTNINGAR                     SEP 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------------
Framboðnir tonnkm. (ATK´000)        18.940           9%    152.325          10%
Seldir tonnkm. (FTK´000)             8.653           9%     70.115           6%
HÓTEL                               SEP 13      BR. (%)     ÁTÞ 13      BR. (%)
-------------------------------------------------------------------------------
Framboðnar gistinætur               22.956           3%    246.523           9%
Seldar gistinætur                   16.025          -6%    183.084           7%
Herbergjanýting                      69,8%  -6,7 %-stig      74,3%  -1,0 %-stig



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010