2009-06-05 21:11:28 CEST

2009-06-05 21:12:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir

Vel heppnuðu hlutafjárútboði til fagfjárfesta lokið


Hlutafjárútboði Marel Food Systems hf. til fagfjárfesta lauk í dag, föstudaginn
5. júní. Góð þátttaka var í útboðinu og bárust tilboð um kaup á alls 26.567.963
hlutum. Stjórn félagsins ákvað að taka öllum tilboðum, sem voru að stærstum
hluta frá lífeyrissjóðum, á verðinu 54 krónur á hlut. Heildarsöluandvirði
útboðsins var 1.434.670.002 krónur. sem svarar til 8,3 milljóna evra. 

Stjórn Marel hefur í kjölfarið samþykkt að auka hlutafé félagsins um 26.567.963
hluti. Hlutafjárhækkunin nemur 4,6%  og er heildarhlutafé Marel 606.868.275
hlutir eftir útboðið. 

Nýi Kaupþing banki hf. (Kaupþing) hafði umsjón með útboðinu fyrir hönd Marel
Food Systems en tilgangur útboðsins var að styrkja frekar lausafjárstöðu
félagsins, ásamt því að auka sveigjanleika og minnka rekstraráhættu. 

Theo Hoen, forstjóri Marel Food Systems, lýsti yfir ánægju með góðar
undirtektir fagfjárfesta í útboðinu. „Við erum þakklát því trausti sem
fjárfestar og bankar hafa sýnt félaginu með þátttöku sinni í þessu útboði,
nýlegu skuldabréfaútboði og endurfjármögnun langtímaskulda félagsins. Á
undanförnum vikum höfum við styrkt efnahag félagsins og tryggt stöðuleika í
fjármögnun og horfum nú fram á veginn til þeirra tækifæra sem framundan eru.“ 

Gjalddagi hinna nýju hluta er fimmtudaginn 11. júní næstkomandi. Marel mun óska
eftir því að nýju hlutirnir verði teknir til viðskipta hjá Nasdaq OMX Iceland
eigi síðar en mánudaginn 15. júní næstkomandi. 

Marel Food Systems er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er
leiðandi á heimsvísu í framleiðslu á tækjum og kerfum til matvælavinnslu. Hjá
fyrirtækinu starfa um 3.700 manns um allan heim og starfrækir fyrirtækið
skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum. Velta af kjarnastarfsemi
fyrirtækisins árið 2008 nam 548 milljónum evra. 

Nánari upplýsingar veita: 
Theo Hoen, forstjóri Marel, sími +354 563-8000 
Arnar Ragnarsson, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings, í síma +354
444-7000