|
|||
2017-03-24 20:02:24 CET 2017-03-24 20:02:24 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Niðurstöður hluthafafundarLánasjóður sveitarfélaga - niðurstöður aðalfundarAðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. var haldinn föstudaginn 24. mars 2017 kl. 16:00 á Grand Hótel Reykjavík. Helstu niðurstöður fundarins: 1. Ársreikningur 2016 lagður fram til afgreiðslu Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins vegna ársins 2016. 2. Ákvörðun um greiðslu arðs Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um að þann 7. apríl verði hluthöfum greiddar 491 milljón króna í arð vegna ársins 2016. 3. Kosning stjórnar skv. 15 gr. samþykkta félagsins Sjálfkjörið var í stjórn og varastjórn félagsins Aðalmenn: -- Magnús B. Jónsson var kjörinn formaður stjórnar -- Arna Lára Jónsdóttir, forseti bæjarráðs Ísafjarðarbæjar -- Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum -- Helga Benediktsdóttir, deildarstjóri fjárstýringar hjá Reykjavíkurborg -- Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ Varamenn: -- Ólafur Þór Ólafsson, bæjarfulltrúi hjá Sandgerði -- Einar B. Einarsson, bæjarfulltrúi Hafnafirði -- Kristín M. Birgisdóttir, bæjarfulltrúi Grindavík -- Elín Einarsdóttir, bæjarfulltrúi Grindavík -- Eyrún I. Sigþórsdóttir, Kópavogi 4. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki skal endurskoðandi ráðinn til 5 ára í senn. PWC var ráðið endurskoðunarfyrirtæki lánasjóðsins árið 2015 og því var ekki kosið um þennan lið fundarins. 5. Breytingar á samþykktum félagsins vegna málsvarnarsjóðs Aðalfundur samþykkti að fresta afgreiðslu til næsta aðalfundar. 6. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um breytta starfskjarastefnu. Starfskjarastefnuna má finna á heimasíðu lánasjóðsins. 7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir störf þeirra Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um óbreytt stjórnarlaun 8. Önnur mál Önnur mál voru ekki borin upp og var fundi slitið kl. 17.15 Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson í síma 515 4949 eða ottar@lanasjodur.is |
|||
|