|
|||
![]() |
|||
2015-12-11 14:44:26 CET 2015-12-11 14:44:26 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn fær lán í evrum frá Norræna fjárfestingarbankanumLandsbankinn og Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) hafa undirritað lánasamning til fimm ára, að fjárhæð 30 milljónir evra (jafnvirði um 4,2 milljarða króna). Í samningnum er kveðið á um að Landsbankinn endurláni upphæðina til verkefna sem efla samkeppnisstöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja og til að fjármagna umhverfisvæn verkefni á Íslandi. Landsbankinn hefur veitt lánsfjármagni sem fellur undir ofangreinda skilgreiningu til verkefna og fyrirtækja í ýmsum atvinnugreinum og fjármögnun NIB gefur Landsbankanum færi á að efla enn frekar lánveitingar til slíkra verkefna. Þetta er fyrsta óveðtryggða lánið sem NIB veitir íslenskum banka frá því að fjármagnshöft voru sett á árið 2008. „Að mati Norræna fjárfestingarbankans er ramminn mikilvægur liður í því að stuðla að fjárfestingu lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi. Við teljum að afnám gjaldeyrishafta muni ýta frekar undir efnahagslegan bata á Íslandi. Við álítum að í stjórn efnahagsmála í landinu hafi verið stigin nauðsynleg skref til að tryggja að bankakerfið standist álagið þegar höftunum verður aflétt,“ segir Henrik Normann, forstjóri Norræna fjárfestingarbankans. „Undirritunin í dag markar ánægjulegan áfanga í uppbyggingu trausts á erlendum fjármálamörkuðum. Lánveiting NIB ásamt nýlegum skuldabréfaútgáfum Landsbankans í evrum, sænskum krónum og norskum krónum eru skýr dæmi um aukið traust erlendra fjárfesta á Landsbankanum og íslensku efnahagslífi. Landsbankinn hefur undanfarin ár markvisst unnið að því að auka fjölbreytni og styrk fjármögnunar bankans jafnt í íslenskum krónum sem í erlendri mynt. Lánskjörin í samningnum við NIB eru bankanum hagfelld og styðja við markmið bankans um að lækka fjármögnunarkostnað og auka fjölbreytni lánveitenda í erlendri mynt. Aukinn áhugi erlendra fjárfesta og aðgangur að erlendu lánsfé á hagstæðum kjörum eru mjög mikilvæg fyrir íslenskt efnahagslíf,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. NIB er fjölþjóðleg lánastofnun í eigu átta aðildarríkja; Danmerkur, Eistlands, Finnlands, Íslands, Lettlands, Litháens, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn fjármagnar verkefni sem fela í sér gagnkvæma hagsmuni fyrir lántakendur og aðildarríkin. NIB hefur hæstu mögulegu lánshæfiseinkunn, AAA/Aaa, frá alþjóðlegu lánshæfismatsfyrirtækjunum, Standard & Poor’s og Moody’s. Nánari upplýsingar veitir: Hanna Kristín Thoroddsen, Fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma +003,54 410 7328 |
|||
|