2010-08-13 17:34:42 CEST

2010-08-13 17:35:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKS 12 0824 og RIKS 21 0414


Föstudaginn 20. ágúst kl. 11:00 fer fram útboð með tilboðsfyrirkomulagi hjá
lánamálum ríkisins. 

Í þessu útboði verða seld bréf í nýjum tveggja ára flokki ríkisbréfa RIKB 12
0824.  Flokkurinn ber 4,25% árlega nafnvexti með gjalddaga 24. ágúst ár hvert.
Lokagjalddagi bréfsins er 24. ágúst 2012.  Frekari lýsingu á flokknum er hægt
að sjá á www.lanamal.is.  Einnig verða boðin til sölu bréf í verðtryggða
flokknum RIKS 21 0414.  Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að
loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum
ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig
tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að
nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 25. ágúst 2010.

Í þessu útboði óskar Lánamál ríkisins eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka
ríkisverðbréfa: 

Flokkur		Lokagjalddagi	Útistandandi fjárhæð*	Lánstími
RIKB 12 0824	24.8.2012	0 m.kr.			2 ár
RIKS 21 0414	14.4.2021	26.182 m.kr.		11 ár
*að nafnverði

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 24.
ágúst 2010. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 25. ágúst 2010. 

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins, í síma 569
9633.