2014-08-29 11:04:18 CEST

2014-08-29 11:05:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Spölur ehf. - Ársreikningur

Spölur - Árshlutauppgjör 1. janúar 2014 til 30. júní 2014


  -- Hagnaður Spalar ehf eftir skatta fyrir rekstarárið 1. janúar 2014 til 30.
     júní 2014 nam kr. 178,6 m.kr. en hagnaður á tímabilinu 1. janúar 2013 til
     30. júní 2013 nam 120,6 m.kr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á öðrum
     ársfjórðungi félagsins sem er 1. apríl 2014 til 30. júní 2014 nam 139,7
     m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 109,9 m.kr.
  -- Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem
     verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka
     lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 6 ár hefur verið
     sterk. Um 629 mkr. (2012:627 mkr.) voru greiddar í afborganir og vexti á
     tímabilinu 1. janúar 2013 til 31. desember 2013 og nauðsynlegt
     umframfjármagn var að auki til staðar 31. desember 2013 eins og
     lánasamningar gera ráð fyrir.
  -- Veggjald nam 525 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 508 m.kr.
     árið áður sem er 3% hækkun.
  -- Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 164
     m.kr. og lækkar um rúmar 13 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 177 m.kr.
  -- Afskriftir á tímabilinu námu 59 m.kr., sem er sama fjárhæð og árið áður.
  -- Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur lækka á milli tímabila um 43 m. kr.
  -- Skuldir Spalar ehf hækka úr 3.473 m.kr. þann 31. desember 2013 í 3.618
     m.kr. þann 30. júní 2014.
  -- Spölur ehf er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf.



Um uppgjörið

Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu heldur
meiri en áætlanir fyrir 

fyrstu 6 mánuði rekstrarársins gerðu ráð fyrir. Sama gildir fyrir árið í heild
miðað við síðasta ár. 

________________________________________________________________________________
_________________ 

Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma
433 5910.