2013-03-28 01:00:00 CET

2013-03-28 01:00:04 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Hluthafafundir

Aðalfundur Regins hf. verður haldinn 22. apríl 2013


Stjórn Regins hf. boðar til aðalfundar í félaginu og verður hann haldinn í
Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, fundasalnum Rímu, Austurbakka 2, 101
Reykjavík, mánudaginn 22. apríl 2013 og hefst stundvíslega kl. 16:00. 

Dagskrá fundarins er svohljóðandi, sbr. 15. gr. samþykkta félagsins:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl. starfsár.
  2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram
     til staðfestingar.
  3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á næstliðnu
     reikningsári.
  4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar.
  5. Ákvörðun um heimild til stjórnar um kaup á eigin bréfum.
  6. Tillögur til breytinga á samþykktum.
  7. Kosning félagsstjórnar.
  8. Kosning endurskoðanda.
  9. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir næsta kjörtímabil.
 10. Önnur mál.

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður
skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboð verða
ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu eftir að því hefur verið
framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir setningu fundarins, hvort heldur
sem fyrr er. 

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á aðalfundinum, ef
hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar áður en tvær vikur eru til
aðalfundarins. Nánar um heimildir hluthafa til að fá mál tekin til meðferðar á
fundinum vísast til samþykkta félagsins sem finna má á heimasíðu þess. 

Atkvæðagreiðslur og kosningar  verða einungis  skriflegar á fundinum ef einhver
atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með
rafrænum hætti á fundinum. 

Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað, án tillits til þess hversu
margir sækja hann sbr. 14. gr. samþykkta félagsins. 

Dagskrá og endanlegar tillögur munu vera hluthöfum til sýnis á skrifstofu
félagsins í Smáralind, 3. hæð, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, tveimur vikum fyrir
aðalfundinn. Upplýsingarnar verða auk þess aðgengilegar á heimasíðu félagsins,
www.reginn.is. 

Fundargögn verða afhent á fundarstað.

Kópavogur, 28. mars 2013

Stjórn Regins hf.