|
|||
2010-08-31 19:06:46 CEST 2010-08-31 19:07:47 CEST REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - ÁrsreikningurSex mánaða árshlutauppgjör 2010Eik fasteignafélag hf. birtir í dag árshlutauppgjör sitt að loknum stjórnarfundi þar sem árshlutareikningur félagsins var samþykktur. Hagnaður fyrirtækisins var 105,7 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. • Velta var 832,2 milljónir króna, sem er 8% samdráttur frá fyrra ári. • EBITDA var 595 milljónir króna, sem er 10% samdráttur. • Arðsemi eiginfjár á ársgrundvelli var 16,5%, samanborið við -29,4% árið á undan. • Heildareignir félagsins voru að andvirði 20,1 milljarður króna. • Víkjandi fjármagn, þ.e. eigið fé, víkjandi lán og tekjuskattsskuldbindingar, var að andvirði 2,54 milljörðum króna. • Hlutfall víkjandi fjármagns var 12,6%. • Handbært fé frá rekstri var 278,6 milljónir króna samanborið við 193,3 milljónir í fyrra. Eins og áður hefur komið fram er félagið að fara í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu. Gert er ráð fyrir að fljótlega náist sátt meðal allra óveðtryggðra kröfuhafa, þar með talið eigendur í skuldabréfaflokki EIK 05 1, um að breyta kröfum sínum í hlutafé. Beðið er niðurstaðna veðtryggðra kröfuhafa um skuldbreytingar. Gangi allar skuldbreytingarnar eftir benda áætlanir félagsins til þess að staða félagsins verði góð. Frekari upplýsingar veitir: Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags hf. S. 590 2200 / 861 3027 |
|||
|