2017-07-05 14:25:58 CEST

2017-07-05 14:25:58 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS151155 og LSS150434 þann 4. júlí 2017. Uppgjör viðskipta fer fram fimmtudaginn 6. júlí 2017.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu.   

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.200.000.000 á bilinu 2,64% - 2,90%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 200.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,73%.  Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS151155 fyrir ISK 20.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,73%. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 220.000.000 í LSS151155.  Heildarstærð flokksins er nú ISK 3.837.000.000.

Ekki bárust tilboð í viðbótarútgáfu í flokki LSS150434. 

 

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þór Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is