2008-08-28 18:40:56 CEST

2008-08-28 18:41:58 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sparisjóðurinn í Keflavík - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2008


Tap Sparisjóðsins í Keflavík 10,6 milljarðar eftir skatta

Góð eiginfjárstaða og traustur grunnrekstur 


Helstu niðurstöður fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008:

•  Tap eftir skatta nam 10,6 milljörðum. Neikvæð þróun á hlutabréfamarkaði hafði
   afgerandi áhrif á niðurstöðu tímabilsins. 

•  Hreinar vaxtatekjur námu 992 milljónum.

•  Hreinar þjónustutekjur námu 244 milljónum.

•  Hreinar rekstrartekjur voru neikvæðar um 9,95 milljarða. Helstu ástæður eru
   þróun hlutabréfamarkaða og varúðarniðurfærsla eignasafns Sparisjóðsins vegna
   óhagstæðra markaðsaðstæðna. 

•  Heildareignir námu 90,5 milljörðum.

•  Heildarútlán til viðskiptavina Sparisjóðsins námu 72 milljörðum í lok júní og
   hafa aukist um 9,6 milljarða frá áramótum, eða 15,46%. 

•  Innlán eru 62,34% af heildarútlánum til viðskiptamanna. Innlán hafa aukist um
   15,4% frá áramótum og voru 44,9 milljarðar í lok júní. 

•  Eigið fé Sparisjóðsins í Keflavík nam 12 milljörðum þann 30. júní 2008.

•  Eiginfjárhlutfall (CAD) Sparisjóðsins var 10,31% þann 30. júní 2008.

•  Vaxtamunur tímabilsins var 2,15% í samanburði við 1,4% fyrir sama tímabil
   árið 2007 og 1,2% fyrir allt árið 2007. 

•  Sérstök virðisrýrnun útlána nam 1.212 milljónum í samanburði við 157
   milljónir á sama tímabili árið 2007. Um er að ræða varúðarframlag sem
   endurspeglar ekki endanleg útlánatöp, heldur er ætlað að mæta hugsanlegum
   útlánatöpum í framtíðinni. 

Annað:

•  Nú er að ljúka fjármögnun íbúðabréfa Sparisjóðsins að verðmæti um 5 milljarða
   ISK í gegnum Íbúðalánasjóð. 

•  Endurskipulagning starfseminnar hefur m.a. leitt til fækkunar starfsmanna í
   Sparisjóðnum um 11,2% frá áramótum eða um 17 stöðugildi. Svigrúm er til að
   lækka rekstrarkostnað enn frekar og sífellt er leitað leiða til hagræðingar í
   rekstri. 

•  Á næstu mánuðum verður lögð áhersla á að styrkja grunnrekstur sjóðsins enn
   frekar. 

Geirmundur Kristinsson, Sparisjóðsstjóri

Samhliða grunnrekstri hefur Sparisjóðurinn í Keflavík á síðustu árum byggt
afkomu sína að nokkru leyti á þróun fjármálamarkaða. Hefur það skipulag
starfseminnar gefið vel af sér hingað til en undanfarna mánuði hafa hinsvegar
óhagstæðar markaðsaðstæður komið verulega niður á afkomu okkar. Miklar lækkanir
á mörkuðum, verðmætarýrnun og háir stýrivextir hafa skilað neikvæðri  afkomu
fyrstu 6 mánuðina. Þrátt fyrir þessi vonbrigði þá er grunnrekstur Sparisjóðsins
í Keflavík hins vegar traustur og hafa hreinar vaxtatekjur aukist mikið milli
ára. Vaxtamunur er nú um 2,15% og er afkoma grunnrekstrar, samkvæmt
starfsþáttayfirliti, góð. Eiginfjárstaða Sparisjóðsins er einnig góð eins og
eiginfjárhlutfall okkar (CAD hlutfall) ber með sér.  Fjármögnun og
lausafjárstaða Sparisjóðsins er í ágætu jafnvægi í dag, sérstaklega eftir að
fjármögnun íbúðalána okkar í gegnum Íbúðalánasjóð gengur í gegn. 

Í ljósi breyttra aðstæðna hefur verið farið í vinnu sem felur í sér
endurskipulagningu starfseminnar með það að markmiði að styrkja grunnrekstur
Sparisjóðsins enn frekar. Samsetning eignasafns Sparisjóðsins verður einnig
tekin til endurskoðunar.
Á síðustu misserum höfum við sameinast 3 öðrum sparisjóðum og enn eru ónýttir
ýmsir möguleikar til að ná fram þeirri hagræðingu sem í slíkum sameiningum eru
fólgnir. 

Sparisjóðurinn stendur sterkur, þrátt fyrir það bakslag sem við finnum núna
fyrir.  Horfur út þetta ár eru betri og ef ytri aðstæður verða hagstæðar þá
næst viðunandi rekstrarniðurstaða á síðari helmingi ársins.