|
|||
![]() |
|||
2017-10-17 17:30:00 CEST 2017-10-17 17:30:00 CEST Vátryggingafélag Íslands hf. - FjárhagsdagatalVÍS birtir uppgjör 3. ársfjórðungs 2017 eftir lokun markaðar 25. október 2017Kynningarfundur verður haldinn 26. október kl. 8:30VÍS mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2017 eftir lokun markaðar þann 25. október næstkomandi. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 26. október 2017 í húsnæði félagsins, Ármúla 3, kl. 8:30. Á fundinum mun Helgi Bjarnason forstjóri kynna uppgjör félagsins og svara spurningum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á íslensku og á ensku á heimasíðu VÍS: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestafundur Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu og nálgast upptöku að honum loknum á vefslóðinni: https://www.vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestafundur Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri VÍS í netfangi fjarfestatengsl@vis.is |
|||
|