2017-10-31 13:08:23 CET

2017-10-31 13:09:23 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr viðbótarútgáfu


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkum LSS150434 og LSS151155 mánudaginn 30. október 2017. Uppgjör viðskipta fer fram miðvikudaginn 1. nóvember 2017.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. 

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 838.000.000 á bilinu 2,50% - 2,55%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 638.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,53%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS150434 fyrir ISK 29.800.000 á ávöxtunarkröfunni 2,53% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS150434 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 667.800.000.  Heildarstærð flokksins er nú ISK 27.906.152.565.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.141.000.000 á bilinu 2,59% - 2,80%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 544.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,60%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS151155 fyrir ISK 50.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,60% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS151155 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 594.000.000.  Heildarstærð flokksins er nú ISK 5.541.000.000.

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þór Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is