2017-10-31 16:55:58 CET

2017-10-31 16:56:39 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Fjarskipti hf. - Ársreikningur

Fjarskipti hf. : Reglugerðarbreyting í reiki hefur áhrif á afkomu fjórðungsins


Árshlutareikningur Fjarskipta hf. fyrir þriðja ársfjórðung 2017 var samþykktur
af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 31. október 2017.

  * Tekjur námu 3.437 m.kr. og standa í stað samanborið við þriðja ársfjórðung
    2016
  * Framlegð 1.550 m.kr., lækkun um 6% miðað við sama tímabil 2016
  * EBITDA hagnaður nam 853 m.kr., lækkar um 8% milli ára
  * EBITDA hlutfall 24,8% og EBIT hlutfall 13,3% á fjórðungnum
  * Hagnaður tímabilsins nam 290 m.kr.
  * Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins nam 50,4%


Stefán Sigurðsson, forstjóri:

"Rekstur  þriðja  fjórðungs  einkenndist  af  áhrifum  af reglugerðarbreytingu í
reiki,  Roam  like  home,  sem  hafði  umtalsvert  neikvæð áhrif á farsímatekjur
félagsins  borið saman  við sama  tímabil 2016. Áhrif reglugerðarbreytingarinnar
skýrir  þannig alla  lækkun EBITDA  á tímabilinu  og rúmlega  það miðað við sama
tímabil 2016. Áhrif breytingarinnar gæta mest á þriðja fjórðungi sem hefur verið
lang  stærsti reikifjórðungur vegna ferðalaga viðskiptavina og munu áhrifin vera
hlutfallslega  minni á öðrum fjórðungum  auk þess sem mótvægisaðgerðir munu hafa
áhrif  til  dæmis  á  næsta  fjórðungi  og  á  árinu  2018. Ágætis  gangur var í
sjónvarpstekjum  félagsins á fjórðungnum með áframhaldandi  vexti á milli ára og
hefur  vöxtur í sjónvarpstekjum verið viðvarandi á milli fjórðunga síðustu árin.
Rekstrarkostnaður   á  þriðja  fjórðungi  stendur  nánast  í  stað  þrátt  fyrir
kjarasamningsbundnar  hækkanir á launum og launatengdum gjöldum. Dregið hefur úr
lækkun  í launa- og starfsmannakostnaði  samanborið við þriðja fjórðung 2016 þar
sem ráðist var í hagræðingaaðgerðir á fyrri helmingi árs 2016, húsnæðiskostnaður
er aftur á móti að skila nokkurri lækkun á milli tímabila.

Það  var stór áfangi á fjórðungnum þegar sátt náðist við Samkeppniseftirlitið um
kaup á fjölmiðla- og fjarskiptahluta 365 að undanskildu Fréttablaðinu og Glamour
með  skilyrðum.  Í  sáttinni  felst  að Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup
Fjarskipta hf. á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla hf. gegn skilyrðum, meðal
annars  að ráðast  í aðgerðir  til þess  að tryggja  samkeppni á  fjarskipta- og
fjölmiðlamarkaði  og fjölbreytni á  fjölmiðlamarkaði. Nú er  mikil vinna í gangi
við  að leggja  lokahönd á  samrunann og  fara í  gegnum hefðbundna  fyrirvara í
kaupsamningi.  Markmiðið er að afhending geti farið fram þann 1. desember 2017.
Félagið  stendur  við  fyrri  áætlanir  sem  kynntar  hafa  verið í tengslum við
samrunann  um 1.750 m.kr. aukinn EBITDA-hagnað sem bætist við rekstur Vodafone á
12-18 mánuðum.  Full áhrif samrunans taka því  að gæta árið 2019 eða 2020, eftir
því  hversu hratt gengur að  ná fullri samlegð. Við  teljum raunhæft að sameinað
félag  verði með  yfir 5 ma.kr.  EBITDA hagnað  þegar samlegð  er að fullu komin
fram."


[]