|
|||
![]() |
|||
2016-01-21 15:28:52 CET 2016-01-21 15:28:52 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirÚtgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir fyrri hluta árs 2016Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2016 kemur fram að Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 2.246 mkr. vegna framkvæmda. Gert er ráð fyrir að lántakan verði framkvæmd með stækkun á verðtryggðum skuldabréfaflokki RVK 53 1 og óverðtryggðum skuldabréfaflokki RVKN 35 1. Heildarstærð RVK 53 1 er ISK 19.040.000.000 að nafnvirði. Heildarstærð RVKN 35 1 er ISK 1.700.000.000 að nafnvirði. Borgarráð samþykkti á fundi sínum 21. janúar 2016 eftirfarandi útboðsdagsetningar fyrir fyrri hluta árs 2016. Skuldabréfaútboð Reykjavíkurborgar verða á eftirfarandi dögum: 10. febrúar, 9. mars, 13. apríl og 11. maí. Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð. Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi. Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 411-1111 |
|||
|