2024-04-30 17:45:00 CEST

2024-04-30 17:45:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Birting uppgjörs Reykjavíkurborgar og kynningarfundur fyrir markaðsaðila



Reykjavíkurborg mun birta uppgjör ársins 2023 fimmtudaginn 2. maí kl. 13.

Reykjavíkurborg mun í tengslum við birtingu uppgjörsins halda kynningarfund fyrir markaðsaðila. Fundurinn fer fram fimmtudaginn 2. maí kl. 16:00 í skrifstofum Reykjavíkurborgar Borgartúni 12, 7. hæð í Kerhólum.

Einar Þorsteinsson borgarstjóri og Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs munu fara yfir helstu atriði í uppgjöri ársins, stöðu og horfur, ásamt því að svara spurningum.

Nánari upplýsingar veitir,
Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
halldora.karadottir@reykjavik.is