|
|||
2022-08-19 16:42:36 CEST 2022-08-19 16:42:37 CEST REGULATED INFORMATION Landsnet hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Árshlutareikningur Landsnets fyrir janúar - júní 2022Árshlutareikningur Landsnets fyrir janúar – júní 2022 var lagður fram í dag. Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjármála hjá Landsneti segir rekstur stöðugan og á áætlun þrátt fyrir áskoranir í aðfangakeðjunni Helstu atriði árshlutareiknings: Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 19,5 m. USD (2.518,2 millj.kr) 1 fyrstu 6 mánuði ársins 2022 samanborið við 16,5 m. USD (2.130,2 millj.kr) á sama tímabili árið 2021. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 32,7 m. USD (4.231,0 millj.kr) samanborið við 28,7 m. USD (3.709,8 millj.kr) árið áður. Heildareignir félagsins í lok tímabilsins námu 1.031,1 m. USD (137.882,8 millj.kr) samanborið við 1.020,2 m. USD (136.417,9 millj.kr) í lok árs 2021. Heildarskuldir námu í lok tímabilsins 563,8 m. USD (75.390,9 millj.kr) samanborið við 549,6 m. USD (73.495,1 millj.kr) í lok árs 2021. Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 45,3% samanborið við 46,1% í lok ársins 2021. Eigið fé í lok tímabilsins nam 467,3 m. USD (62.491,9 millj.kr) samanborið við 470,6 m. USD (62.922,9 millj.kr) í lok árs 2021. Handbært fé í lok júní nam 28,9 m. USD (3.866,4 millj.kr) og handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 41,8 m. USD (5.411,6 millj.kr). Nánar á www.landsnet.is þar sem hægt er að nálgast ársreikninginn. 1 Til viðmiðunar eru sýndar íslenskar krónur, notast var við meðaltal miðgengis Seðlabanka USD/ISK 129,33 fyrir rekstrartölur en lokagengi miðgengis Seðlabanka þann 30. júní USD/ISK 133,72 fyrir efnahagstölur. Viðhengi |
|||
|