2009-01-15 23:32:54 CET

2009-01-15 23:33:49 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Hf. Eimskipafélag Íslands - Fyrirtækjafréttir

Eimskip semur við skuldabréfaeigendur


- Mikilvægur stuðningur meðan unnið er að fjárhagslegri endurskipulagningu
félagsins. 

Hf. Eimskipafélag Íslands hefur samið við eigendur 90% að virði skuldabréfa í
flokknum HFEIM081, útgefinn að verðmæti 1.610m ISK. 

Samkomulag er um að skuldabréfaeigendur falli frá gjaldfellingarákvæðum sínum
og Eimskip hefur nú heimild til að fresta gjalddaga þar til 30 dögum eftir sölu
eigna í Norður Ameríku er lokið en þó eigi síðar en 30. júní. Þá verði öllum
vaxtagreiðslum frestað yfir sama tímabil og gjaldfallnir vextir bætast við
höfuðstól. Áður hefur verið tilkynnt um samskonar samkomulag við mikinn
meirihluta eigenda skuldabréfaflokkanna HFEIM071 og HFEIM072. 

Eimskip vinnur jafnframt að samskonar samkomulagi við eigendur annarra
skuldabréfaflokka útgefnum af félaginu og mun tilkynna um það innan skamms. 


Frekari upplýsingar veitir Gylfi Sigfússon, forstjóri Hf. Eimskipafélags
Íslands.