2017-01-10 10:12:59 CET

2017-01-10 10:12:59 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Kópavogsbær - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kópavogsbæ birt meðalgöngustefna Þorsteins Hjaltested ábúanda Vatnsenda fyrir Héraðsdómi Reykjaness


Í dag var Kópavogsbæ birt meðalgöngustefna Þorsteins Hjaltested ábúanda
Vatnsenda í máli nr. E-1362/2014 fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Krafa Þorsteins
er tilkomin vegna eignarnáms Kópavogsbæjar í landi Vatnsenda árið 2007. Forsaga
málsins er sú að hinn 25. apríl 2014 var Kópavogsbæ birt stefna af hálfu
erfingja Sigurðar k. Hjaltested fyrrum ábúanda Vatnsenda. Með vísan til 20. gr.
laga um meðferð einkamála 19/1991 hefur Þorsteinn nú höfðað meðalgöngusök gegn
öðrum málsaðilum og gerir þær dómkröfur að honum verði heimiluð meðalgangan.
Jafnframt að honum verði dæmdir þeir hagsmunir sem búa að baki kröfu erfingja
Sigurðar K. Hjaltested gagnvart Kópavogsbæ. Dómkrafa Þorsteins á hendur bænum
er að fjárhæð kr. 27.541.702.570 og rúmast að öllu leyti innan þeirrar
fjárkröfu sem erfingjar Sigurðar K. Hjaltested höfðu sett fram gangvart
Kópavogsbæ. Málið verður þingfest 26. apríl nk.