2014-02-18 17:01:53 CET

2014-02-18 17:02:53 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Annual report (is)

Sláturfélag Suðurlands - Afkoma ársins 2013


Afkoma ársins 2013

  -- Tekjur ársins 10.207 m.kr. en 9.394 m.kr. árið 2012
  -- 466 m.kr. hagnaður á árinu á móti 463 m.kr. árið áður
  -- EBITDA afkoma var 1.021 m.kr. en 980 m.kr. árið 2012
  -- Eiginfjárhlutfall 51% í árslok 2013 en 50% árið áður



Samstæðuársreikningurinn samanstendur af ársreikningi Sláturfélags Suðurlands
svf. og dótturfélagi þess, Reykjagarði hf. 

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á árinu 2013 var 466 m.kr. skv.
rekstarreikningi.  Árið áður var 463 m.kr. hagnaður.  Eigið fé er 3.578 m.kr.
og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 51%. 

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 10.207 m.kr. árið 2013, en
9.394 m.kr. árið áður og hækka því um tæp 9%.  Aðrar tekjur voru 12 m.kr. en 53
m.kr. árið áður. 

Vöru- og umbúðanotkun var 5.348 m.kr. en 4.903 m.kr. árið áður.  Launakostnaður
var 2.172 m.kr. og hækkaði um tæp 10%, annar rekstrarkostnaður var 1.679 m.kr.
og hækkaði um 6% og afskriftir hækkuðu um rúm 2%.  Rekstrarhagnaður án
fjármunatekna og fjármagnsgjalda var 726 m.kr., en 692 m.kr. árið áður. 
Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBITDA) var 1.021 m.kr.  en var
980 m.kr. árið áður. 

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 176 m.kr., en voru 171 m.kr. árið
áður.  Gengistap nam 6 m.kr. samanborið við 8 m.kr. gengishagnað árið áður. 

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 23 m.kr. en árið áður um 29
m.kr.  Reiknaður gjaldfærður tekjuskattur er 106 m.kr. en 87 m.kr. árið áður. 
Hagnaður af rekstri ársins var 466 m.kr. en 463 m.kr. árið áður. 

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 1.006 m.kr. árið 2013 samanborið við
973 m.kr. árið 2012.  Heildareignir Sláturfélagsins 31. desember 2013 voru
7.021 m.kr. og eiginfjárhlutfall 51%, en 50% árið áður.   Veltufjárhlutfall var
2,7 árið 2013, en 3,8 árið áður. 

Fjárfest var á árinu fyrir 681 m.kr. í varanlegum rekstrarfjármunum en 378
m.kr. árið áður.  Á árinu var starfstöð félagsins á Selfossi stækkuð en þar er
m.a. slátur- og frystihús félagsins.  Einnig var hafin bygging á nýju vöruhúsi
fyrir áburð á athafnasvæði félagsins í Þorlákshöfn.  Seldar voru eignir fyrir
21 m.kr. 

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2013 var í aprílmánuði greiddur
14,5% arður af B-deild stofnsjóðs alls 26 m.kr. og reiknaðir 7% vextir á
A-deild stofnsjóðs alls 20 m.kr. 

Stjórnin staðfesti endurskoðaðan ársreikning félagsins á stjórnarfundi í dag.

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX.  Sláturfélagið
birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti. 



Aðalfundur

Aðalfundur Sláturfélags Suðurlands verður haldinn föstudaginn 21. mars n.k. 
Stjórn félagsins mun þar leggja til að greiddur verði 13,7% arður af B-deild
stofnsjóðs, þar af verðbótarþáttur 3,7%, alls 24,7 m.kr. eða 0,14 kr. á hvern
útgefin hlut og reiknaðir 6% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs,
alls 18 m.kr. 



Staða og horfur

Afkoma Sláturfélagsins hefur verið stöðug og góð undanfarin ár. Fjárhagsstaða
félagsins er einnig mjög sterk með 51% eiginfjárhlutfall og veltufjárhlutfall
2,7. Árleg greiðslubyrði lána er lág miðað við greiðslugetu félagsins og
skuldahlutfall lágt. Geta félagsins til fjárfestinga er því viðunandi. 



Staða félagsins er mjög sterk og spennandi vaxtartækifæri í öllum megindeildum.



Fjárhagsdagatal 2014

Aðalfundur 2014                   21. mars 2014

Jan-jún 2014 uppgjör            22. ágúst 2014

Júl-des 2014 uppgjör            19. febrúar 2015

Aðalfundur 2015                   20. mars 2015







Frekari upplýsingar veitir:



Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 - steinthor@ss.is

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 - hjalti@ss.is